Securitas

5807000

Vopnuð árás á lögfræðistofu - Hvað er til ráða ?

Gudmundur ArasonÍ framhaldi af þeim váatburði sem átti sér stað í morgun, að maður réðst á lögfræðing inni á lögfræðistofu þar sem hann starfaði höfum við, hér hjá Securitas, tekið saman lista yfir nokkrar forvarnir sem við mundum mæla með. Ekki er víst, að þessar ráðstafanir hefðu getað komið í veg fyrir þann atburð sem varð í dag, enda aðstæður mjög ólíkar og brotavilji manna misjafn.

Með þessari umfjöllun viljum við bregðast við ástandi sem snertir okkur öll, sem búum á Íslandi. Tíðni alvarlegra afbrota virðist vera að aukast og svo virðist sem vopn komi æ oftar við sögu í sakamálum síðustu misserum.

Við viljum einnig koma góðri kveðju á framfæri við þá sem urðu fyrir barðinu á árásinni í morgun og vonum innilega að þeir nái fullum bata sem fyrst.

Skipta má forvörnum gegn utanaðkomandi misindismönnum í tvo flokka, annars vegar lausnir sem hægt er að grípa til strax, (s.k. Quick-Fix aðgerðir) og síðan aðgerðir sem eru framtíðar ráðstafanir og krefjast undirbúnings og framkvæmda við húsnæðið.

Fyrst má nefna aðgerð sem hægt er að grípa til með mjög litlum fyrirvara, en það er staðbundinn öryggisvörður í anddyri staðarins. Með því að hafa öryggisvörð í einkennisfatnaði sem tekur á móti viðskiptavinum staðarins er sterklega gefið til kynna, að öryggismál staðarins eru tekin föstum tökum. Þetta hefur bæði fyrirbyggjandi gildi til að koma í veg fyrir váatburði auk þess sem það skapar starfsmönnum meiri öryggistilfinningu. Allir okkar öryggisverðir eru útbúnir með Tetra fjarskiptabúnaði sem gerir þeim kleyft að vera í fjarskiptasambandi við stjórnstöð okkar sem opin er 24/7.

Á stöðum hætta er talin mikil á ógn eða árás, útbúum við öryggisverði okkar á viðeigandi hátt til að tryggja öryggi þeirra sem best. Allt tekur þetta mið af þörfum og óskum viðskiptavina okkar.

Önnur ráðstöfun sem koma má upp með litlum fyrirvara og á mjög skömmum tíma er árásarhnappur / hnappar. Hægt er að setja upp með einföldum hætti árásarhnapp í móttöku staðarins ásamt því að hægt er að útbúa valda starfsmenn til að bera þráðlausa hnappa. Sé ýtt á hnappinn koma um það boð á stjórnstöð okkar og brugðist er við málinu á viðeigandi hátt í framhaldinu.

Þær ráðstafanir sem virka hvað best í þessu sambandi eru tengdar húsnæðinu sjálfu og hönnun þess. Þessar ráðstafanir útheimta e.t.v. breytingar á húsnæði eða aukinn tækjakost og í nútíma þjóðfélagi er nauðsynlegt að skerpa vel þær línur sem eru á milli utanaðkomandi aðila (viðskiptavina og annarra) og síðan starfsmanna. Það er sjálfsagt mál, að viðskiptavinur geri grein fyrir sér og erindi sínu áður en hann kemst inn á skrifstofur staðarins. Í þessu felst engin lítilsvirðing við viðskiptavininn og oftar en ekki upplífir hann vissa festu í umgjörð fyrirtækisins ef móttaka hans er skipulögð og formföst.

Við mælum eindregið með því að í fyrirtækjum sé anddyri sérgreint þannig, að utanaðkomandi aðilar komist ekki innar í fyrirtækið nema hafa gert fulla grein fyrir sér. Þetta er gert með hurðum eða hliðum sem varna því að þeir sem ekki eiga erindi fái inngöngu. Aðgangsstýrikerfi hjálpa til við þetta og hjálpa til við að gera greinarmun á þeim sem eiga erindi innar í fyrirtækið og þeim sem eiga það ekki.

Hér er listi yfir aðgerðir og búnað, þó hann sé alls ekki tæmandi:
   • Staðbundinn öryggisvörður eða móttökuritari
   • Neyðarhnappar
   • Hurðir og aðrar lokanir eins og gönguhlið
   • Aðgangsstýrikerfi
   • Myndavélakerfi

Securitaskveðja -  Guðmundur Arason, forstjóri