Securitas

5807000

Smelltu hér

Hvað skal hafa í huga

Hjörtur Fr. Vigfússon, markaðsstjóri Securitas

Hvað skal hafa í huga þegar borin eru saman öryggiskerfi fyrir heimili


Fyrir stuttu var ég að leita á internetinu og fann þá skemmtilega grein um öryggismál og hvað skal hafa í huga þegar velja á öryggiskerfi.  Ég snaraði henni yfir á íslensku og læt hana fylgja hér fyrir neðan:

 

Öryggi fjölskyldunnar eru án vafa mikilvægasti þáttur í huga hvers mans. Hugarró er byggð á þeirri trú að ástvinir og fjölskylda séu örugg, heimili sé varið óvelkomnum gestum og að þú og aðrir séuð tilbúinn við bregðast öllum þeim neyðaratvikum sem komið geta upp.

Öryggiskerfi, stundum kölluð Heimavörn, eru nauðsynleg fyrir heildavörn hvers heimilis. Hágæða öryggiskerfi eru ekki bara notuð til að koma í veg fyrir þjófnað og innbrot, heldur eru þau líka mjög hjálplega þegar kemur að eldsvoðum og læknisaðstoð. Auk þess að vera fyrirbyggjandi aðgerðir, þá getur uppsetning öryggiskerfis lækkað heimilistryggingar í einhverjum tilfellum.
Þegar kemur að því að velja þjónustuaðila öryggiskerfisins eru margir hlutir sem þú þarf að haga í huga – þú vilt jú aðeins það besta fyrir heimili þitt og fjölskyldu á sem bestum kjörum.
Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga þegar valið er öryggiskerfi og þjónustu sem á bak við það liggur:

Ímynd og saga fyrirtækisins
Hafa skal í huga hvaða markaðurinn segir um gæði og áreiðanleika. Fyrirtæki með mikla reynslu á þessum vettvangi eru oftar en ekki með betri sögu sem endurspeglast í hollustu viðskiptavina þessi, hágæða vörum og frábærri þjónustu. Ein leið til að kanna þessa þætti er nýta sér kosti internetsins, skoða heimasíður viðkomandi fyrirtækja eða einfaldlega spyrja nágranna eða vini. Með því móti getur þú séð hversu lengi viðkomandi fyrirtæki hefur verið á markaði, séð fjölda viðskiptavina og hlustað á reynslusögur annarra.


Öryggiskerfi og öryggisvörur

Mismunandi fyrirtæki munu að sjálfsögðu bjóða upp á mismunandi vörur sem hluta af heildar öryggi og vöktun. Þú getur verið viss um að að ekki eru öll öryggiskerfi jafn góð eða með sömu eiginleika. Sum hafa t.d. bara þráðlausar lausnir, meðan önnur eru bæði þráðlaus og víruð, allt eftir hentugleika viðskiptavinarins. Einnig bjóða sumir aðilar ýmsa aðra möguleika, eins og reyk- gas, og vatnskynjara auk mismunandi tegunda öryggismyndavéla sem henta hvort sem er innan- eða utanhúss. Vertu viss um að þinn þjónustuaðili bjóði eingöngu hágæðavörur fyrir hágæða öryggiskerfi sem þú getur treyst í hvaða aðstæðum sem er.

tekklisti

Virk stjórnstöð og þétt þjónustunet
Annar stór þáttur í vali á öryggiskerfi er stjórnstöð og stærð þjónustunets þjónustuaðila. Hafðu í huga að stjórnstöð þjónustuaðilans er fyrsta varnarstig og viðbragðsstöð allra öryggisþátta. Stjórnstöðin er ábyrg fyrir allri samþáttur þeirra aðila sem koma að máli þegar að öryggi er ógnað.
Vertu viss um að stjórnstöðin sé virka 24 tíma sólahringsins og hafi þjónustunet og viðbragðáætlun á þínu svæði. Því þéttara net og fleira starfsfólk sem er á ferðinni því betri viðbragðstími í þeim tilvikum sem eitthvað kemur upp á og þú ert þar af leiðandi öruggari. Einnig þarf stjórnstöðin að hafa sína eigin öryggisáætlun, þ.e. ef af einhverjum orsökum hún verður óstarfhæf að aðrar stöðvar geti tekið yfir við að sinna þínum öryggismálum.

Samantekt
Það er best að bera saman þjónustuaðilana, gæði vörunnar og þjónustuna sem í boði er. Gerðu stuttan lista og gefðu þér tíma í að bera saman möguleika, öryggiskerfin, verð og þjónustuna sem liggur á bak við. Það mun hjálpa þér að velja hvar þín fjárfesting er best geymd fyrir öryggi fjölskyldu þinnar.

 

Hjörtur Fr. Vigfússon, markaðsstjóri