Securitas

5807000

Heiðarleiki

PalmarHeiðarleiki er eitt af grunngildum Securitas og kannski það mikilvægasta. Heiðarleiki gagnvart viðskiptamönnum og samstarfsaðilum er undirstaða góðrar þjónustu, árangursríkra samskipta og stuðlar að jákvæðu andrúmslofti á vinnustaðnum. Við sýnum heiðarleika með því að halda okkur við staðreyndir, standa við gefin loforð, uppfylla kröfur og viðurkenna mistök.

Við hlúum að heiðarlegum samskiptum innan fyrirtækisins með því að deila upplýsingum og taka tillit til vinnuálagsins, hvert hjá öðru. Heiðarleiki er númer eitt og er ekki umsemjanlegur.

Pálmar Örn, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Securitas