Securitas

5807000

Smelltu hér

Haukur í horni

Hrafn LeoBetur sjá augu en auga. Myndavélaraugað er góður liðsauki við þjófavörn og öryggisvörslu, hvort sem málið snýr að heimavörn eða firmavörn. Segja má að myndavélin sé hinn eini sanni haukur í horni, með sitt haukfráa auga, t.d. við fjarmyndavöktun. En myndavélar eru misgóðar og öryggiskerfi eiga mikið undir gæðum og áreiðanleika eftirlitsmyndavéla.
Í þessari viku fáum við góða heimsókn frá Dallmeier, fyrirtæki sem er leiðandi í heiminum þegar kemur að myndavélakerfum. Meðal stærstu viðskiptavina þeirra eru spilavíti og bankar, þ.e. fyrirtæki sem gera kröfu um hágæðalausnir í myndeftirliti.
Það verður spennandi að sjá hvaða tækninýjungar snillingarnir hjá Dallmeier draga upp úr hatti sínum að þessu sinni. Miðað við vöruþróunarstarf þeirra hingað til þá ættum við að geta sýnt viðskiptavinum okkar nýjar og hugvitssamlegar lausnir til að bæta eftirlitskerfi og auka öryggi þeirra í hvívetna.

Hrafn Leó, vöruþróunarstjóri