Halda þarf öryggisbúnaði við
Hafa þarf í huga að öryggisbúnaður getur úrelst og gengið úr sér eins og öll önnur tækni. Framfarir verða í gæðum og endingu með hverri kynslóð og gott er að endurnýja reglulega búnaðinn sem verndar heimilið og fyrirtækið. Viðskiptavinir í Heimavörn eða Firmavörn Securitas kaupa áskriftarþjónustu sem innifelur allan tækjabúnað, uppsetningu, viðhald og endurnýjun. Reglulega er farið yfir búnaðinn, skipt um eftir þörfum og þess vandlega gætt að allt virki eins og það á að gera.
Heiða Björk Júlíusdóttir, öryggisráðgjafi




