Securitas

5807000

Langar þig að eiga möguleika á að komast til Dublin fyrir tvo í fjórar nætur?

ThorhildurÞað er ýmislegt sem kemur í hugann þegar talað er um fyrsta apríl en kannski ekki sparnaður, greiðsla á réttum tíma, fríðindapunktar og tímasparnaður. 

Í veröldinni sem við lifum í erum við sífellt að spara tímann sem við eyðum í vitleysu og ákváðum við hjá Securitas að leggja okkar afl á vogarskálarnar og spara okkar viðskiptavinum þann tíma sem tekur að greiða reikninginn sinn með því að setja hann á kreditkort. Það er mikið unnið með því t.d. er það umhverfisvænna þar sem ekki er kastað til pappír í prentun reiknings, ekkert seðilgjald sem fellur til þar sem greiðsluseðill er ekki sendur út og síðast en ekki síst að greiðslan safnar fríðindapunktum.
Punkturinn yfir i – ið í þessu er leikur sem er í gangi fram að 1. apríl næstkomandi sem gengur út á að setja mánaðargreiðslur sínar yfir á greiðslukort og eiga þá möguleika á að vinna ferð fyrir tvo til Dublin með Úrvali Útsýn.