Hikvision
Securitas er umboðsaðili fyrir Hikvision sem er einn af leiðandi framleiðendum IP myndavéla í heiminum í dag. Hikvision er sá framleiðandi sem hefur vaxið hvað mest á undanförnum árum og er í dag í flokki með þeim stærstu á markaðnum.
Hikvision býður breiða vörulínu í IP myndavélum allt frá SD upplausn upp í 5 MP.
Allar myndavélarnar eru spennufæddar yfir Ethernet (POE) en hægt er einnig að spennufæða þær með 230/12 voltum. Myndavélarnar bjóða upp á H.264/MJPEG/MPEG4 þjöppun og 2 myndstrauma (Dual stream). Hægt er einnig að stilla bandbreidd (Bitrate) myndavélanna, bæði breytilega og fasta bandbreidd.
Hikvision IP myndavélar er hægt að fá bæði sem box- eða hálfkúlumyndavélar (Dome). Allar myndavélarnar eru með sjálfvirkri birtustillingu (Auto Iris), sjónarhorn þeirra er stillanlegt (Vari focal) og linsurnar eru aspherical. Myndflaga myndavélanna er 1/3“ og með „Back light compensation“. Dome myndavélarnar eru 3-axis og því hægt að setja þær á láréttan og lóðréttan flöt.
Hikvision býður einnig myndavélar sem henta við erfið birtuskilyrði og henta mjög vel á móti birtu. Þessar myndavélar eru með svokallaðri „Wide Dynamic Range“ (WDR) virkni. Teknar eru nokkrar myndir frá ljósustu yfir í dekkstu stillingu og þeim skeytt saman í eina mynd. Við þetta ferli næst að hámarka myndgæði við erfiðar aðstæður eins og á móti sól, andlit verða skýr og bakgrunnur sést vel.
Allar myndavélarnar eru með innganga og útganga sem hægt er að nota til að tengjast öðrum búnaði, svo sem hreyfiskynjurum.






